Aldrei þessu vant er ég hjartanlega sammála talsmanni Þjóðkirkjunnar. Ég tel málflutning Vilborgar Oddsdóttur, félagsráðgjafa hjá Hjálparstarfi kirkjunnar, um starf hjálparstofnanna vera til fyrirmyndar. Ég er henni sammála um að það sé nauðsynlegt að setja reglur um starf hjálparstofnanna, sérstaklega ef þær eru studdar af hinu opinbera.
Sammála Þjóðkirkjunni

