Um Skoðun

Skoðun hóf göngu sína 23. júní 1999 og var meðal fyrstu vefrita á Íslandi. Hér er vettvangur fyrir gagnrýna og málefnalega þjóðfélagsumræðu um stjórnmál, hugmyndafræði, heimspeki og menningu, í anda frjálslyndis og umburðarlyndis.

Á árum áður skrifuðu nokkrir pennar á Skoðun. Í dag birtir stofnandinn, Sigurður Hólm Gunnarsson, hér greinar og hugleiðingar, meðal annars efni sem hann deilir á samfélagsmiðlum. Eldra greinasafnið er áfram aðgengilegt.

Ritstjórnarstefna Skoðunar:

(Samin af ritstjóra en að hluta byggð á siðareglum Blaðamannafélags Íslands)

1. Skoðun er vettvangur fyrir gagnrýna og málefnalega þjóðfélagsumræðu.

2. Áhersla er lögð á umræðu um stjórnmál, hugmyndafræði, heimspeki og menningu í anda frjálslyndis og umburðarlyndis.

3. Pistlahöfundar skrifa undir eigin nafni og bera ábyrgð á öllu sem þeir skrifa.

4. Pistlahöfundar forðast að valda fólki óþarfa sársauka eða vanvirðu.

5. Pistlahöfundar leitast við að upplýsa um hagsmunatengsl í skrifum sínum. Svo sem með því að upplýsa um tengsl við hagsmunasamtök og stjórnmálahreyfingar.

6. Pistlahöfundar leggja sig fram við að segja rétt frá staðreyndum og eru hvattir til að vísa í heimildir.

7. Pistlahöfundar skrifa samkvæmt eigin sannfæringu og án ritskoðunar innan þess ramma sem ritstjórnarstefna Skoðunar setur þeim.

10. mars 2013

Ritstjórn og tenglar

Ritstjóri:
Sigurður Hólm Gunnarsson (CV)