Mannréttindaskrifstofa Íslands gagnrýnir útlendingafrumvarpið

Sigurður Hólm Gunnarsson | 21.04.2004

Mannréttindaskrifstofa Íslands (MRSÍ) hefur sent frá sér nokkuð ítarlega gagnrýni á útlendingafrumvarp dómsmálaráðherra. Í umfjöllun MRSÍ segir meðal annars að í frumvarpinu séu “ýmis afskaplega varhugaverð nýmæli” sem óhjákvæmilegt sé að gera athugasemdir við. Áhugasamir geta lesið gagnrýni MRSÍ á vef samtakanna eða hér á Skoðun.