Að blása upp væntingar

Sigurður Hólm Gunnarsson | 28.10.2013

Sigmundur Davíð GunnlaugssonÍ fréttum RÚV í gær sagði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra að stjórnarandsstaðan væri að blása upp væntingar fólks:

„Stjórnarandstaðan hefur reynt að auka enn á væntingar til nýju ríkisstjórnarinnar og meira að segja gengið svo langt að byrja algjörlega að endurskilgreina það sem við höfum sagt í skuldamálum.“

Fyrir einum og hálfum mánuði sagði hann sjálfur á þingi:

„Í undirbúningi eru róttækustu aðgerðir stjórnvalda nokkurs staðar í veröldinni í þágu skuldsettra heimila“.

Hver er það aftur sem er að blása upp væntingar?